29. mars 2008 klukkan 15:31
Enda ekki seinna vænna.
Undanúrslit 20. og 22. maí og svo úrslit 24.maí.
Er búin að vera að hlusta á þau lög sem munu keppa í ár og einnig rifja upp nokkur gömul og góð í leiðinni.
Hef verið að skoða líkurnar á því að við, Íslendingar, komumst upp úr undanúrslitum og því búin að kynna mér þau lög sem við keppum við.
Svíar og Danir munu etja kappi við Júróbandið og er það erkióvinur JúróÍslands, Charlotte Perelli (fyrrum Nilsson) sem syngur eldgamlan slagara fyrir Svía.
Einhver pottloksDani syngur svo sama lagið og Danir senda alltaf reglulega, nú síðast árið 2005 í flutningi Kobba Sveistrup.
Það má því segja að þessir þrjár frændþjóðir séu býsna gamaldags í lagavalinu þetta árið en einmitt sökum þess er ómögulegt að ætla að spá fyrir um hvort að þessi lög komist áfram.
Held amk að Júróbandið þurfi að "spice-a" upp atriðið sitt allsvakalega til þess að sýna það og sanna að góð popplög þurfi ekki að vera gamlar klisjur.
Endilega skipta út þessum dönsurum fyrir eitthvað brjálæði, sleppa öllu hliðar-saman-hliðar kjaftæði og kaffæra svo allt saman í ljósum og glimmeri.
Hef annars engar áhyggjur af Portúgal, Hvíta-Rússlandi, Albaníu og Sviss þar sem þar er ekkert að gerast.
Ho ho ho, hey hey hey lag sjóræningjana frá Lettlandi á ekki skilið að fara í neitt ferðalag, gellen frá Georgíu er blind þannig að ég þori ekkert að segja um hana, Makedónía veldur vonbrigðum, Ungverjaland er bara leiðinlegt, Malta er með hrikalegt orkudrykkjapartýslag um Vodka og hin úkraínska næstum-því-Anastasía heillar mig ekki.
Ég þori að spá bæði Búlgaríu og Rúmeníu áfram, því fyrra á ferskleikanum en því seinna á gamalmenna-faktornum.
Tyrkir kunna þetta og fara áfram.
Held að Tékkar falli flatir á sínu froðupoppi.
Er enn miður mín yfir því að Kýpverjar hafi ekki náð upp úr undanúrslitunum í fyrra og get því ekki tjáð mig um þá yfir höfuð.
Og svo hef ég bara ekki hugmynd um hvað skal segja um Litháa þar sem ungur metalpower-söngvari syngur ballöðu.
So far spái ég eftirfarandi þjóðum í seinni undanúrslitum áfram:
Búlgaría
Tyrkland
Rúmenía
Malta
Ætla að spá aðeins í þessu.....