Já þetta er ný færsla...
27. júní 2008 klukkan 14:49
Ákvað að láta vita að ég er á lífi.
Annars er ástæðan fyrir þessu bloggleysi sú að ég vinn ofsalega mikið, ég er ekki með netið heima og svo er félagslífið svona á sumrið ansi líflegt.
Núna sit ég á kaffihúsinu Skuld og held upp á frídaginn minn og komandi fríhelgi.
Ætli ég fái mér ekki bara köku og hvítvín í tilefni dagsins.
Við höfum það fínt. Nokkuð hefur farið fyrir grillveislum og singstar-partýum að undanförnu og alveg merkilega magnað hvað við þekkjum skemmtilegt fólk.
Var að lenda í skemmtilegu atviki því hér á næsta borði sitja nokkrir Svíar sem höfðu farið í Kaðlín og keypt sér vettlinga. Þær í Kaðlín eru svo sniðugar að þær endurvinna lókalblaðið og búa til úr því poka. Þessir tilteknu Svíar höfðu fengið vettlingana sína pakkaða inn í viðtal og mynd af mér, nokkuð sem þeim fannst voða skondið og sniðugt. Þeir hafa kannski haldið að ég væri eitthvað fræg þar sem ég var í blaði en ég útskýrði málið og við hlógum öll saman, hahaha... Ó svo sniðugt.
Þangað til næst: Hafið það gott

Sunna Guðmundsdóttir
(þegar hægist hjá mér með haustinu)
Jei! Sömuleiðis Herdís:)